Nýjar skýrslur um fósturbörnin

Cynthia Atieno

Hér fyrir neðan eru skýrslur um hvert og eitt barn, smellið á nafnið þeirra til þess að opna skýrsluna. Í skýrslunum er á mörgum stöðum vísað í heimsókn Alex De Rocha. Alex heimsótti Little Bees og aðra skóla sem styrktir eru af Vinum Kenýa og tók upp myndbönd af hluta barnanna. Það fylgja því ekki myndir í þetta sinn, nema af þeim Cynthiu, Christine og Vivian, sem ekki voru í skólanum, daginn sem Alex kom í heimsókn. Þær voru allar rúmliggjandi með flensu. Ég hef ekki enn fengið myndböndin send, það er verið að vinna í að koma þeim í stafrænt form. Ég mun að sjálfsögðu birta myndböndin á vefnum, þegar þau berast mér.

 

Vivian Gakii2

Christine Achieng


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Minningarathöfn um Victor Ochieng

Þann 12. febrúar sl. var ár liðið frá því að Victor Ochieng, aðstoðarskólastjóri Little Bees skólans og sonur Lucyar forstöðukonu skólans, var myrtur nálægt heimili sínu í fátækrahverfinu nálægt Little Bees skólanum. Sonur Victors hafði verið lasinn og fór Victor því út um hánótt til þess að sækja lyf handa honum. Hann átti ekki afturkvæmt, því hann var stunginn til bana á leiðinni. Haldin vVictor's Picture on the Gravear minningarathöfn til heiðurs Victori við gröf hans í Kisumu, á æskustöðvum Lucyar. Fjölmenni fjölskyldumeðlima og vina var viðstaddur athöfnina sem stóð yfir í heilan dag. Blóm voru lögð á gröf Victors og prestar báðu fyrir eilífri hvíld hans. Lucy sagðist hafa kvatt son sinn þarna í síðasta sinn í þessu jarðlífi, en að hún myndi hitta hann aftur í himnaríki. Hér eru myndir frá athöfninni: http://byflugur.blog.is/album/minningarathofn_um_victor

Hvíldu í friði kæri Victor. Vinir Little Bees á Íslandi þakka þér fyrir þitt óeigingjarna starf fyrir börnin okkar.

Hér má svo sjá myndband af Victori: http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/video/8684/

 


Kærar þakkir Ásta Finnbogadóttur

Hún Ásta Finnbogadóttir er ein af systkinunum í Vallatúni (sem fór undir hraun í Vestmannaeyjagosinu). Ásta og Gréta systir hennar eru einar eftirlifandi af systkinahópnum. Frænkurnar af Vallartúnsættinni mynda einstaklega samhentan og skemmtilegan hóp sem hittist reglulega á kaffihúsum eða í heimahúsum, en á 5 ára fresti eru haldin ættarmót. Gígja Árnadóttir, sem hefur stutt Little Bees skólann með ráðum og dáð, síðan hún heimsótti skólann ásamt fyrir nokkrum árum, er ein af þessum flottu frænkum.

Þegar hún Ásta varð 85 ára í febrúar, ákvað þessi flotti frænkuhópur að heiðra Ástu með gjöf, sem er höfðingleg peningagjöf til Little Bees skólans og má hún Lucy forstöðukona velja hvað hún vill nýta peningana í.

Við þökkum auðvitað Ástu og frænkuhópnum innilega fyrir okkur!


Gerðu góðverk og láttu dekra við þig

Það er ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að dekra við sjálfan sig um leið og maður gerir góðverk, en nú er komið að því!
 
Þann 6. febrúar nk. ætla nemendur og starfsfólk Snyrtiakademíunnar í Kópavogi að hafa fjáröflunardag og rennur afraksturinn óskiptur í byggingasjóð Little Be es skólans.
 
Nemendur, kennarar  og annað starfsfólk  Snyrtiakademíunnar ætlar að taka höndum saman og styrkja „Little Bees“ skólann í  Naírobí, Kenía, en skólinn er rekinn fyrir fátæk og munaðarlaus börn.
 

Eftirtalið verður í boði í Snyrtiakademíunni:

Snyrtiskólinn. Kl. 11:30-16.

Andlitsmeðferð                        60 mín        6.000

Húðhreinsun                           75 mín        4.500
            
Litun og plokkun                     45 mín        3.500

Handsnyrting án lökkunar       60 mín        4.000
Handsnyrting með lökkun       75 mín        4.500


Fótsnyrting án lökkunar          60 mín        4.000
Fótsnyrting með lökkun          75 mín        4.500

Líkamsnudd                           60 mín        5.000

2.       Fótaaðgerðaskóli Íslands. Kl. 8:30, 10:30, 13 og 14:30, pantanir í síma 553 7900

Fótaaðgerð kr. 4.500

Við hvetjum auðvitað alla sem vettlingi geta valdið að panta sér tíma sem fyrst í síma 553-7900 


Nýjar myndir af fósturbörnunum í Little Bees

Hér koma myndir af fósturbörnunum í Little Bees, í nýju jólafötunum sem þau fengu í jólagjöf frá íslenskum stuðningsforeldrum:

http://byflugur.blog.is/album/2012_jan/

Smella á litlu myndirnar til að stækka þær.


Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Bókasafn

Brynhildur litla

Ágústa og "týnda barnið"

Mohamed Daudi

Omondi

Höfundur

Brynhildur Jónsdóttir
Brynhildur Jónsdóttir
Höfundur er stuðningsforeldri barns sem býr í miðju fátækrahverfi nálægt Nairobi í Kenýa. 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 45263

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband