Kosningamótmæli eru að breytast í ættflokkastríð
28.1.2008 | 20:07
Af fréttum að dæma eru mótmælin vegna framkvæmdar forsetakosninga í Kenýa að þróast hægt og örugglega, í ættflokkaerjur, sjá grein í Guardian á slóðinni: http://www.guardian.co.uk/kenya/story/0,,2247863,00.html og ítarlegar lýsingar á slóðinni: http://www.guardian.co.uk/kenya/story/0,,2247561,00.html.
Tengiliður okkar, forstöðukona Little Bees, Lucy Odipo segist núna vera flóttamaður í eigin heimalandi, hún þurfi að leita á sérstakt verndarsvæði lögreglunnar til að sofa, því hún óttast að vera brennd inni, eins og hafa verið örlög margra í fátækrahverfunum, m.a. nokkurra barna sem sækja Little Bees. Lucy hefur misst aleigu sína, því öllu var rænt af heimili hennar og einnig úr Little Bees skólanum, mat, skrifborðum, teppum, sængurfötum o.s.frv. Þá er ferðum fólks settar verulegar skorður, þar sem hún segir glæpamenn sitja um fólk til að spyrja það af hvaða ættflokki það er og misþyrma þeim sem eru af röngum ættflokki. Henni hefur tvisvar sinnum tekist að senda mér tölvupóst frá því að þessi ósköð byrjuðu og hefur hún farið í lögreglufylgd. Fylgjendur forsetanna berja á hvor öðrum með kylfum, bogum og örvum og eira engu, ekki heldur saklausum borgurum sem vilja bara fá að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt og nágranna. Ég læt fylgja þessu bloggi mynd af móður eins nemanda í Little Bees, sem varð fyrir barðinu á þessum skríl, hún var næstum barin til dauða, hlaut djúpa skurði á höfuð, öxl, annarri hendi og fótum.
Það er hræðilegt að hugsa til þess að litlu saklausu fósturbörnin okkar skuli búa við þessar aðstæður núna. Síðustu fréttir hvetja ekki til neinnar sérstakrar bjartsýni, þó ég sé fegin að Kofi Annan virðist ekki vera búin að gefast upp á "forsetunum tveimur", eins og Lucy kallar þá, strax.
Hér er hægt að hlusta á nýja frétt um ástandið í Kenýa: http://blogs.guardian.co.uk/podcasts/2008/01/killing_each_other_with_machet.html
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vondar fréttir frá Little Bees, ekki lifðu öll börnin sem skólann stunda af óeirðirnar og íkveikjurnar sem þar hafa verið stundaðar. Enn önnur misstu systkyni eða aðra nána ættingja. Fyrir pening sem sendur var í janúar, keypti Lucy nauðsynjar vegna skólans og fósturbarna auk þess sem hún styrkti fjölskyldur nokkurra annarra Little Bees barna með matargjöfum, sjá myndir á slóðinni: http://byflugur.blog.is/album/LittleBeesjanuar2008/.
Minni svo auðvitað á söfnunarreikninginn, 0137-15-380813, kt. 550109-0850.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.6.2009 kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú klárum við að byggja skólann okkar í Kenya
28.1.2008 | 11:42
Fjáröflun Snyrti-Akademíunnar, til styrktar byggingu skólahúsnæðis fyrir Little Bees skólann í Kenýa var haldin á laugardaginn. Þessar konur eru algjörir snillingar. Núverandi og fyrrverandi nemendur, starfsfólk og eigendur skólans stóðu vaktina í allan daginn og dekruðu við gesti og gangandi. Skólinn gaf efnið og nemendur og starfsfólk vinnuna ... og afraksturinn var yfir 220 þús kr. Með því sem áður hefur safnast, höfum við nú rétt tæpar 400 þús. kr. til að senda til Little Bees, og mun það duga til að ljúka við að koma upp veggjum á fyrstu hæð og veggjum og þaki á annari hæð.
Til ykkar yndislegu kvenna í Snyrtiskólanum segi ég bara mínar innilegustu þakkir fyrir allt ykkar örlæti. Ég veit að flestar hafa svo sannarlega nóg við sinn frítíma að gera og það að þið skylduð vera fúsar til að gefa vinnu ykkar í heilan dag til að létta börnum í annarri heimsálfu lífið, segir allt sem segja þarf um hjartalag ykkar.
Hér eru nokkrar myndir frá fjáröflunardeginum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
... svo mikið af góðu fólki
26.1.2008 | 12:20
Ég er stödd í Snyrtiakademíunni í Kópavogi, þar sem að í gangi er fjáröflunardagur, verið að safna fyrir byggingu skólans okkar í Little Bees. Hér er fullt af fólki að koma og fara og nemarnir duglegu á fullu í andlitsböðum, naglaásetningum, förðunum o.fl.
Elskulegir nágrannar skólans í Hjallabrekkunni, bakaríið Kornið, sendu okkur fullt af bakkelsi fyrir gesti og gangandi að gæða sér á. Kærar þakkir fyrir það!
Enn er hægt að láta skrá sig. Hvet ykkur sem lesa til að hringja í skólann. Síminn er 553-7900 og panta ykkur dekur í dag. Þið sem eruð að fara út í kvöld, upplagt að koma hingað í förðun og styrkja gott málefni í leiðinni. Allur afrakstur dagsins rennur í byggingasjóð Little Bees skólans. Klárum nú fínu bygginguna, sjá slóð http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/image/395560/.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Takk Stína, takk Gígja
23.1.2008 | 23:25