Dugleg börn frá Íslandi söfnuðu fyrir nýjum glugga í skólahúsnæði í Kenía

gluggiÞá er búið að ráðstafa peningunum sem duglegar hnátur frá Íslandi söfnuðu til styrktar börnunum í Little Bees. Þær Katla, Kata og Glóey héldu tombólu en Elín, Rakel Marín, Rakel Sif og Rebekka Líf söfnuðu saman gömlu böngsunum sínum og gengu í hús í Garðabæ og seldu þá. Þess má geta að Katla ásamt ömmu sinni styrkir Agnesi, nemanda Little Bees með mánaðarlegum framlögum, en Elín og fjölskylda hennar styðja við bakið á Marion. Alls söfnuðu þessar frábæru stelpur 20 þúsund krónum sem sendar voru til Little Bees skólans. Fjárhæðin var notuð til þess að kaupa glugga fyrir nýtt skólahúsnæði sem búið er að vera í byggingu undanfarin 3 ár, en hægt gengur að ljúka við. Það er skemmtilegt og gefandi starf að bæta aðbúnað lítilla barna sem ekki voru jafn heppin og við hin, að fæðast í allsnægtunum sem við búum flest við á Íslandi, þrátt fyrirgluggi 3 kreppu. Eins og dæmin sanna þá geta jafnvel átta ára börnin okkar gert heilmikið til að bæta líf jafnaldra sinna Smile

Í Kenía á að heita að grunnskólamenntun sé ókeypis, en engu að síður þurfa börnin að koma sér í skólann, oft langar vegalengdir, eigakvittun skólabúninga og bækur. Little Bees skólinn er í fátækrahverfi þar sem þeir allra, allra fátækustu búa, yfirleitt búa börnin hjá einstæðum mæðrum eða ættingjum sem hafa tekið þau að sér. Skólinn er einkaframtak einstaklinga í hverfinu, sem rann til rifja að sjá öll þessi börn sem enga menntun fengu.

Fyrir þá sem vilja styrkja okkur í að ljúka við skólabygginguna, er bankareikningurinn 0137-15-380813, kt. 550109-0850.

Hér má sjá bréf frá tveimur barnanna í Little Bees, til styrktarforeldra sinna á Íslandi, þar sem þau tala um nýja gluggann í skólanum.

http://byflugur.blog.is/album/2010_juli/image/1010993/

http://byflugur.blog.is/users/70/byflugur/img/agnes_til_kotlu.jpg

katla_kata_og_gloeyElín, Rakel Marín og Rakel Sif. Á myndina vantar Rebekku Líf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband