Viltu gera góðverk með því að láta dekra við þig?
28.10.2010 | 23:44
Tilkynning frá nemendum, kennurum og starfsfólki Snyrtiakademíunnar:
Fimmtudaginn 18.nóvember ætlar Snyrtiakademían að taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku.
Innovit, Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur stendur að og skipuleggur viðburðinn á Íslandi.
Um 100 þjóðir taka þátt og gert er ráð fyrir meira en 40 þúsund fjölbreyttum viðburðum.
Tilgangurinn er að hvetja fólk til frumkvæðis, nýsköpunar og athafna.
Nemendur, kennarar og annað starfsfólk Snyrtiakademíunnar ætlar að taka höndum saman
og styrkja Little Bees skólann í Naírobí, Kenía. Skólinn er rekinn fyrir fátæk og munaðarlaus börn.
Nánar má lesa um skólann og þá sem standa að honum á byflugur.blog.is.
Eftirtalið verður í boði í Snyrtiakademíunni:
1. Snyrtiskólinn. Kl.9-16.
Andlitsmeðferð. Verð kr. 5000.
Litun og plokkun. Verð kr. 3000.
Líkamsnudd. Verð kr. 5000.
2. Fótaaðgerðaskóli Íslands. Kl.9-16.
Fótaaðgerð kr.5.000.
3. Förðunarskólinn. Kl.9-13.
Nemendur og kennarar Förðunarskólans munu bjóða upp á ráðleggingar varðandi dag- , kvöld-
og brúðarförðun. Verð kr. 2000.
Allur ágóði dagsins mun renna óskiptur til Little Bees skólans.
Við vonumst eftir stuðningi þínum við athafnasemi okkar í þágu góðs málefnis.
Panta má tíma í síma 553-7900 eða senda tölvupóst á skoli@snak.is.
Kveðja,
Thelma Hansen (thelma@snak.is)
Framkvæmdastjóri Snyrtiakademíunnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.