Tvö börn í Little Bees skólanum hafa látist í kólerufaraldri

Ég var að fá hræðilegar fréttir frá Little Bees. Miklar rigningar hafa verið að undanförnu, sem hafa orðið til þess að skólpið flæðir um allar götur og í kjölfar þess hefur brotist út illvígur kólerufaraldur. Tvö börn í yngstu deildinni í Little Bees hafa dáið og öll fósturbörnin að tveimur undanskildum eru fárveik.

Ég bíð frekari frétta frá Lucy og læt ykkur vita um afdrif barnanna um leið og þær berast.


Flottar skýrslur um börnin okkar í Nairobi

Til stuðningsforeldra barna í Little Bees

Það eru komnar nýjar skýrslur, einkunnaspjöld, ljósmyndir, bréf og teikningar frá litlu englunum okkar íMarion mín litla Little Bees. Mér sýnist að mörg börnin hafi átt við veikindi að stríða að undanförnu. Ef ég man rétt er oftast regntímabil í apríl á þeirra slóðum og því fylgja oft talsverð veikindi hjá börnunum. Mér sýnist á skýrslunum að þau sem veiktust hafi fengið læknisþjónustu, sem er algjörlega frábært, því að sú þjónusta er mjög dýr í Kenía. Ekki veit ég hvernig hún Lucy fer að þessu!

Einum litlum dreng í hópnum mun þó ekki batna nema að hann gangist undir hjartaaðgerð, því hann er með hjartagalla, sem virðist há honum alltaf meira og meira. Hér er mynd af honum og skýrslan hans: http://byflugur.blog.is/album/2009_april/image/835957/. Það er nú kannski spurning um það hvort við reynum að setja í gang sérstaka söfnun fyrir hjartaaðgerð handa honum? Hvað segið þið um það?

Annars eru þessar flottu skýrslur og bréf hérna:http://byflugur.blog.is/album/2009_april/ - eins og áður smellið þið á litlu myndirnar til að stækka þær.


Fréttir af litlu býflugunum

AnneLauren i LBaAnne Lauren, sem er tengiliður vina Afríku heimsótti Little Bees núna í AnneLauren i LBapríl fyrir okkur, til að sjá hvernig gengi hjá þeim. Hún sagði okkur eftir heimsóknina að þar væri allt starf í góðu lagi, Lucy fær smá hjálp frá ungum manni að nafni Victor, við skýrsluskrif o.þh.

Hér eru nokkrar myndir sem hún sendi okkur.

Okkur gengur auðvitað ekki alveg nógu vel að klára skólahúsið, enn eftir að setja glugga o.fl.  Minni því á söfnunarreikninginn okkar 0137-15-380813, kt. 550109-0850.


Nýjar myndir af fósturbörnunum í Kenía

Til stuðningsaðila barnanna í Little Bees skólanum: 

Þá eru komnar nýjar myndir af fósturbörnunum í Little Bees.  Allir hraustir og kátir. Myndirnar má sjá hér (smellið á litlu myndirnar til að stækka þær):http://byflugur.blog.is/album/2009_februar/.

Þarna eru líka tvö bréf. Lucy er vön að senda þetta í tveimur hollum, þannig að ég á tvaer tannlausar marionalveg eins von á fleiri bréfum á næstunni.  Af henni eru ekki góðar fréttir.  Hún lenti illa í því í átökunum sem voru eftir síðustu kosningar, meiddist í baki og það virðist bara fara versnandi. Hún hefur því verið mikið rúmliggjandi og finnur mikið til.  Hún á líka bágt með gang, þannig að póstarnir frá henni hafa verið frekar strjálir.

Hér er svo sæt mynd af tveimur jafnaldra, tannlausum fóstursystrum, sem búa við afar mismunandi kjör í sitthvorri heimsálfunni. Þær eiga það þó sameiginlegt að vera kátar og klárar stelpur.


Belinda er búin að fá íslenska stuðningsaðila

Hún Belinda littla Atieno í Little Bees skólanum er búin að fá stuðningsaðila.  Hún Margrét Kristín Belinda Atieno 007Sigurðardóttir og fjölskylda hennar ætla að styrkja Belindu með mánaðarlegum framlögum.

Kærar þakkir Margrét, þetta mun bæta líf Belindu talsvert!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband