Jólakort til styrktar byggingarsjóði Little Bees
8.12.2008 | 13:29
Nú getið þið verslað jólakortin um leið og þið hjálpið til við að byggja nýtt skólahúsnæði fyrir litlu skjólstæðingana okkar í Little Bees. Jólakortin eru 5 saman í pakka og kostar einn pakki 500 kr., 2 pakkar 800 og 3 pakkar kosta 1100.
Áhugasamir hafi samband við Brynhildi í síma 8632228, eða á netfangið er byflugur@gmail.com.
Prentsmiðjan Litróf styrkti verkefnið rausnarlega með því að gefa okkur prentunina á kortunum og Gólfþjónusta Íslands ehf gefur okkur umslög og umbúðir, þannig að hver einasta króna sem safnast, rennur til byggingarsjóðsins.
Eins og þið sjáið á myndinni hér fyrir neðan, er skólahúsnæðið komið vel á veg, en enn vantar herslumuninn til að klára glugga, frágang á þaki, veggjum og gólfi.
Ef þið eruð í vandræðum með jólagjöf handa þeim sem eiga allt, er hér auðvitað komin lausnin fyrir þig. Við seljum gjafakort sem segir viðtakanda að peningagjöf hafi verið gefin í hans nafni til styrktar þessu málefni. Sjá nánar á slóðinni: http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/entry/714886/
Þó að húsnæðið virki nú kannski ekki merkilegt á okkar mælikvarða, er það mikil bót frá því sem áður var, eins og sjá má af myndunum hér fyrir neðan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.12.2008 kl. 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
... og fleiri myndir frá Kenía
17.11.2008 | 19:57
Hér koma nokkrar myndir í viðbót, frá því að Kjartan var á ferðinni í Little Bees í september sl.
http://byflugur.blog.is/album/2008_sept_myndir_lucy/
Nýjar myndir frá Little Bees
28.10.2008 | 15:24
Hér eru nýjar myndir sem Kjartan Jónsson tók þegar hann heimsótti fósturbörnin okkar í Little Bees, nú í september:
http://byflugur.blog.is/album/2008_sept_myndir/
Skýrslur um börnin í Little Bees
1.10.2008 | 11:35
Hér koma nýjar skýrslur um fósturbörnin í Little Bees. Það hefur verið mjög kalt hjá þeim og mikil veikindi hafa gengið yfir hópinn, en allir á batavegi núna. Skýrslurnar má sjá á slóðinni (smellið á litlu myndirnar:
http://byflugur.blog.is/album/2008_sept_skyrslur/
Fréttir af fósturbörnunum í Little Bees
30.8.2008 | 16:26
Hér eru nýjar skýrslur með upplýsingar um fósturbörnin í Little Bees og nýjar myndir: http://byflugur.blog.is/album/2008_gust/
Búið er að koma upp hurðum á nýja skólann, en enn er verið að safna fyrir gluggum. Minni því á söfnunarreikninginn: nr. 0137-15-380813, kt. 550109-0850.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.6.2009 kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)