Skólinn okkar í Kenía mjakast upp

Hér hef ég sett saman smá greinargerð um framgang byggingar skólans okkar í Kenía:
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Mama Lucy er kjarnorku- og kraftaverkakona ...

... að sögn Rósu og Gígju sem heimsóttu Little Bees skólann í síðustu viku.  Sjá nánar á:  

http://www.kenya-farar.blog.is/blog/kenya-farar/entry/255560/


Íslendingar á ferð um Madoya slömmið

Hópur íslendinga sem hefur verið á ferð um Kenía undanfarna daga, heimótti Little Bees skólann, hér má sjá frásögn konu af þessari heimsókn:

http://www.hrafnhildurinafrica.blog.is/blog/hrafnhildurinafrica/entry/258359/

 

Minni auðvitað á söfnunarreikninginn vegna byggingu nýrra skólastofa, nr. 0137-15-380813, kt. 550109-0850.


Saga og Haukur heimsóttu slömmið!

Saga frænka mín og Haukur kærastinn hennar, eru á ferðalagi um Kenía og heimsóttu Little Bees skólann fyrir okkur, til að færa fósturbörnunum okkar gjafir og til að skoða hvernig byggingu nýju skólastofanna miðar áfram.  Hér er hægt að sjá upplifun þeirra af þessari heimsókn:

 http://jambomambojambo.blogspot.com/2007/06/jambo.html

Við setjum inn myndir frá ferðalaginu þegar þau koma heim.


Skólinn okkar í Kenía er byrjaður að rísa!

The wall been measuredGaman gaman, ég var að fá fleiri myndir frá Kenía.  Nú er búið að kaupa upp þá kofa sem til þarf, til að rýma fyrir nýrri skólabyggingu og verið að slá upp undirstöðum fyrir nýrri byggingu.  Ekki er nú víst að þessar framkvæmdir myndu samræmast íslenskri byggingareglugerð, en þetta mun nú engu að síður verða gjörbylting fyrir litlu fátæku börnin sem búa þarna í slömminu og stunda þar skóla.

Fleiri myndir af niðurrifi kofanna, teikningum af óskaskólanum o.fl. má sjá á slóðinni: http://byflugur.blog.is/album/Skolabygging/

... og ekki má gleyma að minna á söfnunarreikninginn, sem er orðinn dálítið magur, nr. 0137-15-380813, kt. 550109-0850.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband