Takk mamma!

Mamma átti afmæli á föstudaginn, hún bauð fjölskyldunni í afskaplega skemmtilegt afmælisboð, afþakkaði afmælisgjafir, en bað í staðinn um framlag á söfnunarreikning fyrir Little Bees.

Takk mamma!


Takk fyrir mig!

Á föstudagskvöldið bauð ég heim nokkrum gömlum vinkonum sem unnu með mér fyrir svona ca. 100 árum.  Þessar yndislegu konur glöddu mig ekki bara með nærveru sinni og fullt af blómum, heldur með framlagi í byggingasjóð Little Bees. 

Takk fyrir yndislegu, örlátu vinukonur.


Eldsvoði í Madoya fátækrahverfinu

Fyrir skömmu var mikill eldsvoði í Madoya fátækrahverfinu, þar sem Little Bees skólinn starfar.  Mörg barnanna sem stunda skólann misstu þar allar eigur sínar, skólabúninga o.fl.  Sjá myndir á slóðinni: http://byflugur.blog.is/album/Eldsvodi/.

Samhliða því að byggja nýjar skólastofur yfir nemendurna, erum við að reyna að finna fleiri stuðningsforeldra til að styrkja börninn betur og gera þeim kleift að sinna námi sínu, sjá slóðina: http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/entry/159972/ .

 Að sjálfsögðu höldum við líka áfram að safna á byggingareikning.  Þið þarna úti sem viljið ekki skuldbinda ykkur með 1.500 kr. á mánuði, getið að sjálfsögðu lagt þessum börnum lið með því að styrkja skólabygginguna,  reikningurinn er nr. 0137-15-380813, kt. 550109-0850. 


Robin Owino 6 ára, hefur eignast stuðningsfjölskyldu á Íslandi

Litli Robin Owino sem er 6 ára, er fyrsta fósturbarnið sem gengur út hjá mér, í gegnum þetta blogg.  Hann hefur nú eignast góða sponsora, hana Ingu Kolbrúnu og Arnar, sem ætla að styrkja hann með 1500 kr. framlagi á mánuði.

Ef það eru fleiri þarna úti sem vilja styrkja börn í Little Bees, kíkið þá á http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/entry/159972/.


Robin Owino vantar stuðningsforeldri

Robin Owino whom you wanted

 Þessi litli strákur heitir Robin Owino og er 6 ára.  Hann leitar að stuðningsforeldri á Íslandi.  Viðkomandi myndi greiða 1.500 kr. á mánuði til Vina Kenya, sem kemur greiðslunni til skila.  Reglulega eru svo sendar skýrslur um barnið til stuðningsforeldris. 

Ef þú hefur áhuga á því að taka þátt í uppbyggingu Little Bees með okkur með því að gerast stuðningsforeldri barns þar, sendu mér þá póst á byflugur@gmail.com.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband