Nýjar myndir frá Lucy
1.1.2007 | 20:55
Ég var að fá sendar þessar fínu myndir frá Lucy, forstöðukonu Little Bees. Stuðningsforeldrar á Íslandi sendu aukalega peninga í nóvember sem nema ca. 10 þús. íslenskum krónum. Fyrir þann aur var hægt að kaupa í jólamatinn handa öllu liðinu. Þetta náttúrulega sýnir hvað hægt er að hjálpa mikið með tiltölulega fáum krónum frá Íslandi.
Hér að neðan er texti úr skýrslu frá Lucy þar sem hún gerir grein fyrir þessum peningum:
- "Expenditures Christmas feast & Children toys
- Beans 1 Sack @ 3,800 x 1 = 3,800
- Rice 1 sack @ 2,000 x 1 = 2,000
- Cooking fat 20kg x 1 = 1,300
- Toy balloons and toys to other children = 2,500
- 3 Crates of Sodas = 900
- Expenditure to all school children = 10,500
Mama Lucy Odipo
Founder of Little Bees Orphans Project. "
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Grein úr kenísku blaði um Lucy Odipo
14.12.2006 | 16:37
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Frábærar fréttir - Gunnella á afmæli
13.12.2006 | 14:28
Ég er í sjöunda himni, hún Gunnella vinkona mín á Húsavík verður fertug í desember. Hún ætlar að afþakka afmælisgjafir, en biðja í staðinn um fjárframlög til "Little Bees" verkefnisins.
Til hamingju með afmælið Gunnella, þú rokkar!
... og ennfremur vil ég minna á söfnunarreikninginn okkar, 137-15-380813, kt. 550109-0850
Bloggar | Breytt 5.6.2009 kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Slæmar fréttir frá Little Bees
13.12.2006 | 14:20
Ekki var ég fyrr farin af stað með þessa söfnun þegar tölvupóstur barst frá Lucy Odipo forstöðukonu skólans, um að eitt kofaræksnið sem notuð hefur verið sem kennslustofa hafi fallið saman í kjölfar mikilla rigninga að undanförnu. Kofum þessum er hróflað upp beint ofan á moldarflagið, sem breytist í drullu í rigningunum þannig að grindin á einum þeirra gaf sig með ofangreindum afleiðingum.
Við verðum bara að setja meiri kraft í söfnunina, þannig að hægt verði að byggja á betri grunni í framtíðinni.
Til þeirra sem ekki vita, þá er söfnunarreikningurinn nr.137-15-380813, kt. 550109-0850
Bloggar | Breytt 5.6.2009 kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar hafa safnast um 150 þús. kr.
12.12.2006 | 14:14
Á meðfylgjandi kostnaðaráætlun má sjá að gert er ráð fyrir að bygging einnar kennslustofu muni kosta um 250 þús. kr. auk þess sem gert er ráð fyrir að uppkaup á landi muni kosta annað eins.
Nú hafa þegar safnast um 150 þús. kr. Jibbí.
Ef þú lesandi góður vilt hjálpa til þá er reikningsnúmerið 137-15-380813, kt. 550109-0850
Bloggar | Breytt 5.6.2009 kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)