Gaman, Gaman!

Ég var að ganga frá fyrstu millifærslunni til Kenía.  Greiddi núna fjárhæð sem samsvarar 240 þús. kenískum shillingum, en það dugir til að kaupa upp það land sem þarf til að byggja á.

Nú bíð ég bara spennt eftir pósti frá Lucy Odipo og vonandi myndum af herlegheitAllur Little Bees hópurinnunum, sem verða að sjálfsögðu birtar á blogginu.

Þegar allt söfnunarfé hefur skilað sér, get ég sent fjárhæð sem dugir til að byggja eina kennslustofu svo þessi dásamlegu börn geti lært í sæmilegu húsnæði.  Sjá kostnaðaryfirlit frá Lucy.

Lengra erum við nú ekki komin í bili, þannig að ég hvet ykkur þarna úti sem eigið eitthvað aflögu, um að leggja þessu góða málefni lið, reikningurinn er nr. 137-15-380813, kt. 550109-0850 og minni á að hver einasta króna sem safnast, skilar sér til Little Bees, kostnaður við millifærslur o.fl. verður greiddur af forsvarsmönnum söfnunarinnar.

 

 

 


Nú er fyrsta áfanga náð!

Fjáröflun Snyrti-Akademíunnar, Little Bees skólanum til handa var í dag.  Ég er eiginlega alveg Stjórnendur Snyrti-Akademíunnaragndofa yfir því hvað þessar konur eru gjörsamlega frábærar.  Bæði nemendur, kennarar og eigendur skólans stóðu vaktina í allan dag og fegruðu og snyrtu af hjartans lyst.  Skólinn gaf efnið og nemendur og starfsfólk vinnuna ... og afraksturinn var heilar 287.500,- kr.   Sem þýðir bara það að

fyrsta áfanga þessarar söfnunar er náð!

AfhendingNú hafa alls safnast 480 þúsund krónur sem duga til að byggja eina skólastofu og kaupa landspilduna sem þarf til að byggja á.  Þetta er náttúrulega bara dásamlegt.

Til ykkar yndislegu kvenna í Snyrtiskólanum segi ég bara hjartans þakkir fyrir allt ykkar örlæti.  Ég veit að flestir hafa svo sannarlega nóg við sinn frítíma að gera og það að þið skylduð vera fúsar til að gefa vinnu ykkar í heilan dag til að létta börnum í annarri heimsálfu lífið, segir allt sem segja þarf um hjartalag ykkar.  

Hér eru nokkrar myndir frá fjáröflunardeginum.


Allir tímar að fyllast

 Sólveig Jónasdóttir (mágkona mín) og Inga Kolbrún, skólastjóri Snyrtiskólans voru í morgun hjá Sirrý og Heimi á stöð 2, að kynna söfnunarátak skólans, þar sem safnað verður fyrir byggingasjóð Little Bees.  Sjáið viðtalið á þessari slóð .

Viðtalið hafði aldeilis áhrif, búið er að fylla í allflesta tímana í Snyrtiskólanum á laugardaginn. Þið góðhjörtuðu einstaklingar þarna úti, sem ekki komist á laugardaginn, getið auðvitað bara lagt beint inn á söfnunarreikninginn: 137-15-380813, kt. 550109-0850.


Snyrti-Akademían ætlar að safna fyrir Little-Bees skólann!

Ég var að fá þær fréttir að hinir elskulegu kennarar og nemendur í Snyrti-Akademíunni ætla að hafa opið hús laugardaginn 20. janúar þar sem boðið verður uppá alls konar snyrtingu, förðun og nudd gegn vægu verði. Öll innkoma þennan dag rennur óskipt í byggingasjóð Little Bees.  Hægt verður að fylgjast með gangi söfnunarinnar  á vef skólans .

Þið eruð til fyrirmyndar.  Frábært framtak hjá ykkur í Snyrti-Akademíunni!

Minni svo auðvitað á söfnunarreikninginn, hann er nr. 137-15-380813, kt. 550109-0850.


Helstu styrktaraðilar

Til fróðleiks langar mig að geta þess að helstu styrktaraðilar okkar hingað til hafa verið Heildverslunin Hjölur ehf. og Gólfþjónusta Íslands ehf., en þessi góðu fyrirtæki slepptu jólakortunum í ár og lögðu í staðinn 150 þús. kr. í þetta góða málefni.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband