Gjafirnar komnar í hendur barnanna
31.7.2009 | 17:05
Hér koma myndir frá heimsókn Kjartans til Little Bees, en hann kom færandi hendi með pakka til fósturbarnanna, frá stuðningsforeldrunum á Íslandi. Myndirnar má sjá hér: http://byflugur.blog.is/album/2009_gust/.
Má til með að láta fylgja mynd af henni Belindu litlu. Á myndunum sem ég hef séð af henni hingað til hefur hún virst vera alvarlegasta barn í heimi, með allar áhyggjur heimsins á herðum sér. Það eru fjórar myndir af henni á slóðinni hér fyrir ofan og hún er svo ánægð með gjafirnar sínar að brosið bókstaflega gæti lýst upp heila borg
Takið þið bara eftir þessari mynd: http://byflugur.blog.is/album/2009_gust/image/887201/ , hún er tekin í nýja bókasafninu sem búið er að byggja í pínulítilli viðbyggingu við skólann. Mér finnst þetta algjörlega stórkostlegt, fyrir tveimur til þremur árum voru börnin að læra á moldargólfum í litlum gluggalausum kofum, með bókstaflega engin kennslugögn. Nú eru þau komin með skólahús (þó það sé nú ekki fullklárað) og bókasafn í þokkabót. Mér hefur nú oft fundist vöntunin á öllu þarna vera slík að mér hafa bara fallist hendur, en það er á svona stundum sem þetta verður allt þess virði.
Verð líka að hafa litlu fyrirsætuna hana Macrine hérna, sem fer í pæjugírinn fyrir myndatöku í nýju fötunum sínum.
... og svo fyrir þá sem vilja leggja okkur lið í að hlúa að börnunum í Little Bees, bendi ég á upplýsingar hér: http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/entry/524870/ ... og hér: http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/entry/159972/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslendingar í slömminu
31.7.2009 | 15:39
Nokkrir sjálfboðaliðar frá Íslandi heimsóttu Little Bees skólann. Lesið endilega bloggið þeirra þar sem sagt er frá upplifun þeirra af staðnum: http://kindverjar.blogspot.com/. Þau kalla Mömmu Lucy hetju í hæsta gæðaflokki
Lucy sendi mér myndir af heimsókn Íslendinganna. Þær má sjá hér: http://byflugur.blog.is/album/2009_gust/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Næsta ferð til Kenía
9.7.2009 | 10:45
Til stuðningsforeldra:
Kjartan Jónsson fer til Kenía á þriðjudaginn í næstu viku og er tilbúinn að fara með bréf og pakka fyrir okkur til fósturbarnanna í Little Bees.
Tiltektardagur
8.7.2009 | 19:20

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Litli skólinn okkar er að verða alvöru skóli :)
8.7.2009 | 18:23
Snillingurinn hún Lucy er, ásamt sjálfboðaliðum úr hverfinu, búin að reisa bókasafn fyrir Little Bees skólann. Hún notaði hluta af síðustu mánaðargreiðslum til þess að kaupa bækur í bókasafnið. Litli skólinn sem við erum að hjálpast að við að koma upp, er að verða alvöru skóli. Þegar við
byrjuðum var kennt í litlum gluggalausum hreysum með moldargólfi og engin kennslugögn til staðar. Nú er húsið komið upp, þó að við eigum auðvitað eftir að safna dálítið meira til að ganga frá öllum lausum endum og ofan í kaupið kominn vísir að bókasafni.
Er lífið ekki dásamlegt stundum