Skýrslur um fósturbörnin
8.7.2009 | 18:10
Kæru stuðningsforeldrar, hér eru komnar skýrslur um börnin og bréf og myndir frá þeim sumum.
Hér eru bréf og teikningar: http://byflugur.blog.is/album/2009_juli/
Hér fyrir neðan eru skýrslur um börnin, ýtið á litla merkið fyrir framan nafnið og þá á skjalið að birtast.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndir af börnunum sem létust
2.7.2009 | 11:23
Hér eru myndir af börnunum fjórum sem létust í kólerufaraldrinum sem mörg börn sem stunda Little Bees skólann urðu fyrir barðinu á.
Emmanuel Baraza var bara rétt orðin tveggja ára. Faðir hans var í fangelsi, en hann bjó hjá ömmu sinni. Hann stundaði Little Bees skólann, en var stundum lítill í sér og grét og spurði um ömmu sína. Hvíldu í friði Emmanuel.
Hér er svo mynd af Job Wakoko, hann náði 6 ára aldri áður en kóleran tók hann. Hvíldu í friði Job.
Hér er mynd af Joseph Osore. Hann var 7 ára gamall og munaðarlaus. Hvíldu í friði Joseph.
Að lokum er hér mynd af Mirriam Makeba, hún var lífsglöð og hamingjusöm lítil stúlka, sem stundaði Little Bees skólann, eins og hin börnin. Hvíldu í friði Mirriam.
Hér (http://byflugur.blog.is/album/Fosturborn/) eru myndir af fleiri börnum í Little Bees sem vantar stuðningsaðila og hér (http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/entry/524870/) eru upplýsingar um söfnunarreikninga fyrir mismunandi verkefni varðandi börnin og skólann.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á ennþá jafn vel við og þá!
1.7.2009 | 13:16
Fólk fjarlægt af heimilum sínum
30.6.2009 | 17:06
Hér er frétt af Reuters: http://www.alertnet.org/thenews/newsdesk/LC382137.htm þar sem fram kemur að Amnesty International hefur gagnrýnt kenísk stjórnvöld fyrir að ætla að svipta 127 þúsund manns heimilum sínum. Þetta er næstum því helmingur íbúafjölda Íslands. Þarna segir að til standi að hreinsa upp bakka Nairobi árinnar. Þarna hafa fátæklingar hróflað upp kofum og skv. fréttinni stendur ekki til að tryggja íbúunum aðra búsetu.
Heimili okkar konu í Kenía, hennar Lucy, stendur auðvitað 30 metra frá árbakkanum og er á þessu svæði sem til stendur að rífa. Hún er þó eins og við vitum, mikil baráttukona, og hefur ekki alveg gefið upp vonina um að hún fái heimili sitt bætt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.7.2009 kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Öll fósturbörnin okkar lifðu af kólerufaraldurinn í Kenía
26.6.2009 | 15:31
Loksins góðar fréttir frá Little Bees. Ég fékk póst frá Lucy forstöðukonunni í dag um að öll börnin væru útskrifuð af sjúkrahúsinu, nokkuð slöpp ennþá, en á batavegi. Læknirinn fyrirskipaði mikið af ferskum ávöxtum, soðið vatn og mjólk fyrir börnin. Peningarnir sem við sendum dugðu ekki fyrir lækniskostnaði barnanna og eftir stendur einhver skuld. Lucy tók samt hluta peninganna og keypti fullt af ávöxtum handa börnunum og sagði þeim að það væri gjöf frá stuðningsforeldrum þeirra á Íslandi. Börnin sem enn hafa ekki fengið íslenskan stuðning, fengu líka að njóta. Hún sendir ykkur innilegar þakkir fyrir peningalegan og móralskan stuðning og segir að þessi stuðningur skipti hana ákaflega miklu máli. Nú þurfum við bara að bretta upp ermarnar og reyna eins og við getum að finna fleiri stuðningsforeldra. Ef þið vitið um einhverja sem hafa etv. áhuga á að styðja barn, þá eru börnin hér: http://byflugur.blog.is/album/Fosturborn/.
Dauði þessarra fjögurra barna sem létust í faraldrinum reyndu mjög á okkar konu,en eftir því sem mér skilst á póstinum, var hún hjá þeim á dánarbeðinu. Þetta voru allt börn sem voru undir hennar verndarvænd í Little Bees skólanum.
Þá sagði Lucy mér þær gleðilegu fréttir að ein konan í kvennahóp Little Bees samtakanna hafi fætt litla stúlku sem fengið hafi gælunafnið Brynhildur (í höfuðið á mér ). Ég er eiginlega vandræðalega glöð með upphefðina
. Finnst þó að mér sé gert allt of hátt undir höfði, ég geri auðvitað ekki neitt ein, heldur allt með ykkar hjálp. Stúlkan heitir Brynhildur Akinyi, en Akinyi þýðir "morning hours", þannig að ég kalla hana bara Brynhildi Dögun. Hlakka til að sjá myndir af henni.