Nú byggjum við fyrstu kennslustofuna

Í dag sendi ég aðra greiðslu, kr. 250.000,- til þess að byggja fyrstu kennslustofuna.  Sú fjárhæð dugar fyrir efni, en íbúar á svæðinu hafa lofað því að leggja til starfskrafta sína í sjálfboðavinnu til þess að koma kennslustofunni upp.  Við erum búin að kaupa landið sem þarf, svo nú er bara að byggja .... og byrja að safna fyrir næstu stofu, því að með þessu framlagi er söfnunarreikningurinn galtómur!

Minni auðvitað á bankareikninginn, 0137-15-380813, kt. 550109-0850.


Fyrsta áfanga er lokið!

Nú hafa þær fréttir borist að búið er að ráðstafa peningunum sem ég sendi út, til kaupa á landi.  Little bees sructure before 2Keyptir voru 2 kofar með samtals 8 herbergjum.  Annar kofinn hefur þegar verið rifinn og verður þar byggð ný kennslustofa fyrir peningana sem ég mun senda út fljótlega. Þið sem eigið eitthvað afgangs, mig vantar um 40 þús. til að ná 250 þús., sem kostar að byggja eina kennslustofu.  Reynt verður að lappa uppá hinn kofann og nota í kennslu, a.m.k. til að byrja með. Hér sjáið þið myndir af herlegheitunum, þetta virkar ekki merkilegt, en munar óskaplega miklu fyrir börnin sem þarna stunda nám.   .W00t

Lucy sendi mér kvittanir og kaupsamninga vegna kaupa á landinu.  Þið getið kíkt á hvernig það lítur út undir myndaalbúmi sem heitir mars 2007, hérnaLittle bees sructure before 2 vinstra megin á síðunni.  Þar eru líka fleiri myndir af svæðinu.

Ennfremur minni ég á bankareikning söfnunarinnar, sem er 0137-15-380813, kt. 550109-0850.

 


Marion fékk malaríu

Marion at the ward minÉg ætla að deila með ykkur myndum að henni Marion, fósturbarninu mínu í Little Bees.  Hún var svo óheppin þessi litla elska, að hún fárveiktist af malaríu og þurfti að leggjast á sjúkrahús í nokkra daga.  Kom þaðan svo öll grá og guggin.  Er samt öll að braggast núna, eftir skýrslum að dæma.Marion Atieno at a school

 

 


Kvittun og reikningsyfirlit

Ég bið ykkur afsökunar, örlátu vinir sem hafið leyft litlu börnunum í Little Bees að njóta örlætis ykkar.  Það var alltaf meiningin að setja hér inn kvittanir fyrir öllum greiðslum oþh.  Hér kemur því kvittun fyrir fyrstu (og einu) greiðslunni sem send hefur verið til Little Bees.  Eitthvað meira var nú til á reikningnum, en ég vildi prufa að senda eina greiðslu fyrst og fá kvittanir, áður en ég sendi þá næstu.  Hér fyrir neðan getið þið séð bæði reikningsyfirlit og kvittun fyrir millifærslu.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Peningarnir rötuðu á réttan stað!

Þá var ég loksins að fá staðfestingu á því að peningarnir sem ég sendi í byrjum mánaðarins, hafi ratað á reikning samtakanna sem reka Little Bees skólann.  Þetta tekur allt sinn tíma, þar sem millifærslan frá bankanum fer í gegnum USA, getur það víst tekið 5-7 virka daga, sögðu þeir mér hjá bankanum.  Ég sem hélt að allur (banka)heimurinn væri orðinn svo tæknivæddur að svona lagað tæki nú ekki nema daginn.  Þá er Lucy eins og gefur að skilja, ekki heldur beintengd við bankalínu heiman frá sér úr slömminu.  Hún þarf að ferðast í annan bæ og fara á netkaffihús til að sjá póstinn frá mér, þannig að öll samskipti eru svolítið eins þau voru í gamladaga í gegnum sniglapóstinn.

En loksins kom staðfestingin og þakkarbréf frá Lucy.  Hún segir að 250 þús kenískir shillingar hafi skilað sér inn á bankareikning samtakanna og vill senda öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóginn innilegt þakklæti.  Hún er líka innilega þakklát fyrir bloggsíðuna og fylgist alltaf með henni, þó að hún geti ekki lesið textann.  Þessir peningar verða notaðir til að kaupa land undir nýbyggingar.

Fljótlega get ég sent henni samsvarandi upphæð aftur, sem hugsanlega nægir til að byggja eina kennslustofu.  En við setjum markið auðvitað miklu hærra, byggjum ekki bara eina kennslustofu, heldur heilan skóla!  Munið söfnunarreikninginn 0137-15-380813, kt. 550109-0850..


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband