Gerðu góðverk og láttu dekra við þig
25.1.2012 | 21:25
Eftirtalið verður í boði í Snyrtiakademíunni:
Snyrtiskólinn. Kl. 11:30-16.
Andlitsmeðferð 60 mín 6.000Húðhreinsun 75 mín 4.500
Litun og plokkun 45 mín 3.500
Handsnyrting án lökkunar 60 mín 4.000
Handsnyrting með lökkun 75 mín 4.500
Fótsnyrting án lökkunar 60 mín 4.000
Fótsnyrting með lökkun 75 mín 4.500
Líkamsnudd 60 mín 5.000
2. Fótaaðgerðaskóli Íslands. Kl. 8:30, 10:30, 13 og 14:30, pantanir í síma 553 7900
Fótaaðgerð kr. 4.500
Við hvetjum auðvitað alla sem vettlingi geta valdið að panta sér tíma sem fyrst í síma 553-7900
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjar myndir af fósturbörnunum í Little Bees
24.1.2012 | 00:03
Hér koma myndir af fósturbörnunum í Little Bees, í nýju jólafötunum sem þau fengu í jólagjöf frá íslenskum stuðningsforeldrum:
http://byflugur.blog.is/album/2012_jan/
Smella á litlu myndirnar til að stækka þær.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við þökkum Kvenfélagi Hallgrímskirkju fyrir að styrkja Silvíu
27.11.2011 | 22:22
Ég hef sagt ykkur áður frá henni Silvíu Mwanikha, sem er einn af nemendur Little Bees skólans. Silvía fæddist fötluð á hendi, en fyrir skömmu var ástand hennar orðið þannig að læknar sögðu að ef hún gengist ekki strax undir aðgerð, yrði að taka af henni handlegginn, því höndin var byrjuð að rotna. Meðferð hennar verður í nokkrum áföngum en nú er búið er að taka bein úr baki og læri og bæta í handlegginn. Þegar það verður allt vel gróið verður ráðist í að laga olnboga. Aðgerðir sem þessar eru dýrar og er áætlað að þær muni kosta um 400 þúsund krónur þegar upp er staðið. Þegar hefur verið safnað fyrir um 130 þúsund krónum sem notað hefur verið til að greiða fyrir fyrsta hluta aðgerðanna (sjá mynd og kvittanir hér).
Það er lán í öllu óláninu hennar Silvíu, að hún á afar góða stuðningsforeldra á Íslandi, þau Jóhönnu og Sigurð, sem styrkja hana með ráðum og dáð.
Dóttir Jóhönnu og Sigurðar er hin frábæra söngkona og lagasmiður Magga Stína (Fabúla). Magga Stína tróð upp á jólafundi Kvenfélags Hallgrímskirkju og að uppástungu Jóhönnu, notaði hún tækifærið og kynnti um leið raunir Silvíu fyrir fundargestum. Fundargestir samþykktu að greiða heldur meira en venjulega fyrir hangikjötið, auk þess sem sumir laumuðu auka pening í söfnunarumslagið. Ágóðinn af kvöldinu, um 70 þúsund krónur, renna til læknismeðferða Silvíu. Fundargestir skrifuðu svo allir nöfn sín á kort sem Silvía mun fá sent
Jóhanna, Sigurður, Magga Stína og þið yndislegu konur í Kvenfélagi Hallgrímskirkju, okkar innilegasta þakklæti fyrir ykkar mikla örlæti!
Fjórir flottir bræður í tveimur heimsálfum
17.11.2011 | 20:31
Jose er munaðarlaus og býr ásamt bróður sínum hjá aldraðri ömmu í litlum kofa með moldargólfi. Hann er 8 ára og hefur gaman af því að spila fótbolta með vinum sínum og er duglegur að hjálpa ömmu sinni sem er ekki heilsuhraust.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjar fréttir og myndir
24.10.2011 | 16:17
Hér koma nýjar myndir (http://byflugur.blog.is/album/2011_okt/ ) af fósturbörninum ykkar. Smellið á litlu myndirnar til þess að stækka þær. Fyrir neðan eru svo skýrslur um hvert og eitt barn, smellið á nafnið þeirra til þess að opna skýrsluna.
- Marion - Brynhildur
- Robin - Inga Kolbrún
- Calvin - Beggi
- Silvance - Inga Þyrí
- Nicole - Halldóra
- Amos - Saga
- Macrine - Rósa
- Mohamed - Friðsemd
- Agnes - Ragnhildur/Katla
- Nelius - Hanna
- Belinda - Magga Stína og Börge
- Tracy - Lára
- Loice - María
- Silvía - Sigurður og Jóhanna
- Christine - Mark og Sigrún
- Vivian - Sigrún og Mark
- Garvin - Silla
- Lísa - Íris og Patrik
- Anne Lizzy - Margrét
- Rose - Svava og Gunnar
- Brenda - Hermann
- Peter - Katrín og Hilmar
- Brynhildur
- Cynthia - Dóra Kristín
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.11.2011 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)