Bloggfærslur mánaðarins, október 2011

Nýjar fréttir og myndir

Hér koma nýjar myndir (http://byflugur.blog.is/album/2011_okt/ ) af fósturbörninum ykkar. Smellið á hopurlitlu myndirnar til þess að stækka þær. Fyrir neðan eru svo skýrslur um hvert og eitt barn, smellið á nafnið þeirra til þess að opna skýrsluna. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Nýir stuðningsforeldrar

Katrin og Hilmar frá Selfossi styrkja Peter David Mguna 9 araÞrjú börn í viðbót hafa nú fengið stuðningsforeldra.

Katrín Ýr og Hilmar Þór ætla að styrkja Peter David Mguna, en hann er 10 ára snáði sem býr með fátækri móður sinni, en faðir Peter hvarf í róstrunum sem urðu í kringum kosningarnar 2008.

 Hermann Jónsson styrkir Brendu Achieng. Brenda er 7 ára og býr hjá móður Hermann Jónsson styrkir Brenda Achieng 5 arasinni sem er sjúklingur, en faðir hennar er látinn. Sjálfboðaliðar við Little Bees skólann sjá að mestu um Brendu.

Svava og Gunnar Darri ætla að styrkja Rósu Mwangangi., Rósa er 6 ára, bæði hún og foreldrar hennar eru HIV-jákvæðir.

 

Svava og Gunnar styrkja Rose Mwangangi 6 ára

 


Fréttir af Silviu Mwanikha

Silvia MwanikhaSilvía Mwanikha fæddist fötluð á hendi. Fyrir skömmu var ástand hennar orðið þannig að læknar sögðu að ef hún gengist ekki strax undir aðgerð, yrði að taka af henni handlegginn, því höndin var byrjuð að rotna. Meðferð hennar verður í nokkrum áföngum. Búið er að skera einu sinni, taka bein úr baki og læri og bæta í handlegginn. Silva er nú á spítala með teina í handleggnum. Ef smellt er á hlekkina hér að neðan, má sjá myndir af henni á sjúkrahúsinu. Í öðrum áfanga verður gert við olnboga Silvíu og þegar hún hefur jafnað sig á því verða teinarnir teknir úr og gifsi sett á handlegginn.

Lucy, forstöðukona Little Bees, gerir ráð fyrir að það sem eftir stendur af læknismeðferð Silviu muni kosta um 240 þús. keníska shillinga. Miðað við hvernig gengið hefur verið upp á síðkastið þá gera það um 400 þús. kr. íslenskar. Okkur hefur tekist að safna 127 þúsund kr. sem þegar hafa verið sendir til Little Bees og höldum áfram að safna fyrir því sem eftir stendur.

Söfnunarreikningurinn er 137-26-4645, kt. 550109-0850.

Við viljum þakka Kristjáni S. Gunnlaugssyni, Hrafnhildi Gunnlaugsdóttur, Eydísi Mary Jónsdóttur, Ergo ehf. (Margréti Kristínu Sigurðardóttur og Börge Johannes Wigum), Kristínu Sævarsdóttur, Gunnellu Jónasdóttur, Jóni Hákoni Jónssyni og síðast en ekki síst styrktarforeldrum Silvíu á Íslandi, þeim Sigurði og Jóhönnu, innilega fyrir að styrkja Silvíu til betra lífs.

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband