Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

Kærar þakkir Bjarni Hákonarson

Hann Bjarni frændi minn varð fimmtugur nú í júní. Hann afþakkaði gjafir og bað vini og ættingja um að láta frekar börnin í Little Bees njóta góðs af. Það gerðu þeir svo um munaði og nam upphæðin yfir 50 þúsund krónum.

Jónas Hákon og Inga Sóley Þessi sætu systkin tóku heldur betur á stóra sínum og fylltu heila krukku af peningum sem þau lögðu sjálf til í púkkið og söfnuðu frá gestum og gangandi Grin

 

Kærar þakkir Bjarni fyrir þitt góða framlag!

 

Við setjum inn myndir og upplýsingar þegar búið er að ráðstafa peningunum í Little Bees.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband