Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012

Gerðu góðverk og láttu dekra við þig

Það er ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að dekra við sjálfan sig um leið og maður gerir góðverk, en nú er komið að því!
 
Þann 6. febrúar nk. ætla nemendur og starfsfólk Snyrtiakademíunnar í Kópavogi að hafa fjáröflunardag og rennur afraksturinn óskiptur í byggingasjóð Little Bees skólans.
 
Nemendur, kennarar  og annað starfsfólk  Snyrtiakademíunnar ætlar að taka höndum saman og styrkja „Little Bees“ skólann í  Naírobí, Kenía, en skólinn er rekinn fyrir fátæk og munaðarlaus börn.
 

Eftirtalið verður í boði í Snyrtiakademíunni:

Snyrtiskólinn. Kl. 11:30-16.

Andlitsmeðferð                        60 mín        6.000

Húðhreinsun                           75 mín        4.500
            
Litun og plokkun                     45 mín        3.500

Handsnyrting án lökkunar       60 mín        4.000
Handsnyrting með lökkun       75 mín        4.500


Fótsnyrting án lökkunar          60 mín        4.000
Fótsnyrting með lökkun          75 mín        4.500

Líkamsnudd                           60 mín        5.000

2.       Fótaaðgerðaskóli Íslands. Kl. 8:30, 10:30, 13 og 14:30, pantanir í síma 553 7900

Fótaaðgerð kr. 4.500

Við hvetjum auðvitað alla sem vettlingi geta valdið að panta sér tíma sem fyrst í síma 553-7900 


Nýjar myndir af fósturbörnunum í Little Bees

Hér koma myndir af fósturbörnunum í Little Bees, í nýju jólafötunum sem þau fengu í jólagjöf frá íslenskum stuðningsforeldrum:

http://byflugur.blog.is/album/2012_jan/

Smella á litlu myndirnar til að stækka þær.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband