Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2012

Falleg jólakort til styrktar skólahúsi fyrir nemendur í Little Bees skólanum í Nairobi

Nýju jólakortinÞessi gullfallegu jólakort eru nú til sölu hjá okkur. Pakki með 5 kortum kosta 500 kr.  og fer allur ágóði af sölunni í byggingasjóð Little Bees skólans.

Áhugasamir hafi samband í gegnum netfangið byflugur@gmail.com eða á Facebook "Vinir Little Bees".

 Ágóði af jólakortasölu undanfarin ár ásamt ágóða af fleiri fjáröflunun, hefur staðið undir byggingu nýs skólahúsnæðis fyrir börnin sem stunda skólann.

Þegar við byrjuðum aðbakhlið jólakorta styðja við Little Bees skólann, fór kennslan fram í litlum bárujárnshreysum með moldargólfum, í sumum kofanna voru bekkir en í öðrum var ekki neitt. Kennslugögn skólans voru ein lítil krítartafla, ekkert annað. Börnin höfðu hvorki blöð né skriffæri, hvað þá kennslubækur. Hægt og hægt hefur skólinn risið. Hann er nú tvær hæðir sem báðar hafa verið teknar í notkun.

Nú sitja börnin yfirleitt í skólastofum sem ekki hafa moldargólf, það eru borð og stólar í kennslustofunum og kennarar skrifa námsefnið á töflur. Það er búið að reisa lítinn steinkofa við hliðina á nýja skólanum sem hýsir bókasafn. Þó að safnkosturinn þætti ekki merkilegur á íslenskan mælikvarða, þá er þetta svo ótrúlegur mikill munur frá því sem áður var. Grin

Hér er hlekkur á myndband sem sýnir bókasafnið: http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/video/8692/

Hér er annað myndband sem sýnir Omondi, lýsa þakklæti sýnu fyrir nýja skólann: http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/video/8687/ og þriðja sem sýnir Robin þakka fyrir sig, þarna sést aðeins inn í nýja skólahúsið: http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/video/8685/


Áhrifin inn í svona samfélag þar sem vonleysi og örbirgð ríkja, er þó miklu meiri heldur en bara peningaframlagið. Við það að fá aðstoð og vitneskju um að meiri aðstoðar geti verið að vænta, fyllist fólkið í hverfinu og sjálfboðaliðarnir sem sinna skólanum nýjum krafti og hefjast handa við að bæta umhverfi sitt á allan hátt. Stór öskuhaugur sem lá nálægt skólanum hefur verið fjarlægður og mikill metnaður er lagður í að snyrta umhverfið. Það er ábyggilega ekki algengt að trjám sé plantað í miðjum fátækrahverfum, eins og búið er að gera í kringum Little Bees. Þar sem fæði barnanna er mjög einhæft, var hafist handa við að rækta spínat og annað hollt grænmeti í pokum við skólann. Þá voru einnig keyptar hænur og endur til eldis, til þess að börnin fengju stöku sinnum egg og kjöt, og fleira mætti nefna .

Kona sem heimsótti Little Bees fyrir 4 árum og aftur núna fyrir ári síðan segir að andrúmsloftið á staðnum sé gjörbreytt til hins betra frá því að skólabyggingin reis. Núna ríkir þarna bjartsýni og kraftur. Skólahúsið þjónar ekki eingöngu skólabörnunum, þar er einnig notað sem samkomustaður kvennanna í hverfinu, þar koma þær saman, ráða ráðum sínum og skipuleggja hvað hægt sé að gera meira til sjálfshjálpar.

Ef þú vilt kaupa jólakort, vinsamlegast hafðu samband í byflugur@gmail.com eða á Facebook "Vinir Little Bees".

 

 2010 Des

 

 

 

 


Þakkir frá Little Bees

Hér er bréf frá Lucy í Little Bees, til okkar allra sem styðjum skólann: 

The entire Little Bees Women, staff, teachers and I want to come to your attention of kind tender heart toward vulnerable children to thank you. They also want to thank you and friends fo Iceland, well wishers who have been donating straight to school use, all sponsors who supports orphans with school fees and their daily needs, uniforms, clothes and medications. These have changed the lives of the sponsored children, the yare happy, jolly whenever they get gifts of blankets, new clothes, pens, shoes, and also have changed the environment of Little Bees school.

 

This is a very great charity work to Little Bees, also we cannot forget the great joy and changing of happy life to Sylvia Mwanikha who had a successful surgery but has changed her life. She can now sweep her classroom, wash her clothes and use her sanitary towers nicely and confidently without any assistance or anyone noticing.

 

The well wishers sponsors e.g. Asta, birthday donations and Ragnheidur Jonas, towards school use after closing the school we shall start to build school and I will send them the pictures of their monies used and receipts. I want to thank them too.

 

Thank you Bryn for your good coordination to find good friends and support Little Bees. May God bless you abundantly.

 

Hoping to share with Little Bees X-mass gifts and X-mass Dinner.

 

Wishing you early X-mass and Prosperous New Year 2013.

 

Regards,

 

 

 

Lucy Odipo.

 

 


Nóvemberskýrslurnar

Nýjar myndir af fósturbörnunum ykkar eru hér:

http://byflugur.blog.is/album/2012_agust/

.... þið smellið á litlu myndirnar til að stækka þær.

Hér fyrir neðan koma svo skýrslur um hvert og eitt barn, smellið á nafnið til að ná í skýrslu.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband