Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Skólinn okkar í Kenía er byrjaður að rísa!

The wall been measuredGaman gaman, ég var að fá fleiri myndir frá Kenía.  Nú er búið að kaupa upp þá kofa sem til þarf, til að rýma fyrir nýrri skólabyggingu og verið að slá upp undirstöðum fyrir nýrri byggingu.  Ekki er nú víst að þessar framkvæmdir myndu samræmast íslenskri byggingareglugerð, en þetta mun nú engu að síður verða gjörbylting fyrir litlu fátæku börnin sem búa þarna í slömminu og stunda þar skóla.

Fleiri myndir af niðurrifi kofanna, teikningum af óskaskólanum o.fl. má sjá á slóðinni: http://byflugur.blog.is/album/Skolabygging/

... og ekki má gleyma að minna á söfnunarreikninginn, sem er orðinn dálítið magur, nr. 0137-15-380813, kt. 550109-0850.


Takk mamma!

Mamma átti afmæli á föstudaginn, hún bauð fjölskyldunni í afskaplega skemmtilegt afmælisboð, afþakkaði afmælisgjafir, en bað í staðinn um framlag á söfnunarreikning fyrir Little Bees.

Takk mamma!


Takk fyrir mig!

Á föstudagskvöldið bauð ég heim nokkrum gömlum vinkonum sem unnu með mér fyrir svona ca. 100 árum.  Þessar yndislegu konur glöddu mig ekki bara með nærveru sinni og fullt af blómum, heldur með framlagi í byggingasjóð Little Bees. 

Takk fyrir yndislegu, örlátu vinukonur.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband