Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Við þökkum Kvenfélagi Hallgrímskirkju fyrir að styrkja Silvíu

Ég hef sagt ykkur áður frá henni Silvíu Mwanikha, sem er einn af nemendur Little Bees skólans. Silvía fæddist fötluð á hendi, en fyrir skömmu var ástand hennar orðið þannig að læknar sögðu að ef hún gengist ekki strax undir aðgerð, yrði að taka af henni handlegginn, því höndin var byrjuð að rotna. Meðferð hennar verður í nokkrum áföngum en nú er búið er að taka bein úr baki og læri og bæta í handlegginn. Þegar það verður allt vel gróið verður ráðist í að laga olnboga. Aðgerðir sem þessar eru dýrar og er áætlað að þær muni kosta um 400 þúsund krónur þegar upp er staðið. Þegar hefur verið safnað fyrir um 130 þúsund krónum sem notað hefur verið til að greiða fyrir fyrsta hluta aðgerðanna (sjá mynd og kvittanir hér).

Magga Stína á milli Jóhönnu og Sigurðar

 Það er lán í öllu óláninu hennar Silvíu, að hún á afar góða stuðningsforeldra á Íslandi, þau Jóhönnu og Sigurð, sem styrkja hana með ráðum og dáð. 

Fundargestir jólafundar

Dóttir Jóhönnu og Sigurðar er hin frábæra söngkona og lagasmiður Magga Stína (Fabúla). Magga Stína tróð upp á jólafundi Kvenfélags Hallgrímskirkju og að uppástungu Jóhönnu, notaði hún tækifærið og kynnti um leið raunir Silvíu fyrir fundargestum. Fundargestir samþykktu að greiða heldur meira en venjulega fyrir hangikjötið, auk þess sem sumir laumuðu auka pening í söfnunarumslagið. Ágóðinn af kvöldinu, um 70 þúsund krónur, renna til læknismeðferða Silvíu. Fundargestir skrifuðu svo allir nöfn sín á kort sem Silvía mun fá sent Grin

Jólafundur Kvenfélags Hallgrímskirkju Fallegar mæðgur með mynd af Silvíu

Jóhanna, Sigurður, Magga Stína og þið yndislegu konur í Kvenfélagi Hallgrímskirkju, okkar innilegasta þakklæti fyrir ykkar mikla örlæti!


Fjórir flottir bræður í tveimur heimsálfum

Jose OtienoJose er munaðarlaus og býr ásamt bróður sínum hjá aldraðri ömmu í litlum kofa með moldargólfi. Hann er 8 ára og hefur gaman af því að spila fótbolta með vinum sínum og er duglegur að hjálpa ömmu sinni sem er ekki heilsuhraust.Mathias Meso


Mathias Meso er fæddur 2008 og er á fjórða ári. Hann býr ásamt systur sinni hjá móður þeirra í fátækrahverfinu. Pabbi hans var yfirkennari í Little Bees skólanum, en hann var stunginn til bana í janúar á þessu ári.
 
Þeir Jose og Mathias hafa nú eignast bræður á Íslandi sem eru jafnaldrar þeirra. Það eru þeir Helgi sem fæddur er árið 2003 og Gunnar sem fæddur er 2008 en þeir ætla ásamt móður sinni, Eydísi Mary Jónsdóttur ætla að styrkja þá.
 
Gunnar fæddur árið 2003

 Helgi fæddur 2003


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband